
JÓGA
fyrir heilsuna
Ég bíð uppá einstök námskeið, jógatíma og meðferð með heildrænum árangri.
Skapandi krakkar er sumarnámskeið fyrir börnin okkar.
Jóga dekurhelgi er fyrir þig sem óskar að njóta lífsins til fulls.
Vinnustaðajóga fyrir heilsuna.
Access Bars – Einstök heilunar aðferð
Skoðaðu nánar hér fyrir neðan.
Sendu mér fyrirspurn
yoga@yogadis.is

Access Bars
„Access Bars“ er blíð orkumeðferð sem slakar á huganum og gefur móttakanda möguleika á að lyfta meðvitund yfir á hærra plan. Access Bars eru 32 punktar á höfðinu sem geyma orku og eru þeir allir tengdir mismunandi þáttum í lífinu.

Vinnustaðajóga
Eydís býður uppá VINNUSTAÐAJÓGA í samstarfi við VINNUSTAÐANUDD.
Vinnustaðajóga er töfralausn fyrir alla sem eiga erfitt með að finna tíma til að sinna sjálfum sér. Þeir sem hafa prófað eru sammála um að viðeigandi jógaæfingar á vinnutíma geta gert gæfumun fyrir heilsuna, því stress, kyrrseta og endurtekin hreyfing hefur sýnt sig að stuðla að allt að 80% þeirra sjúkdóma, sem hrjá okkur. Segjum kyrrsetunni stríð á hönd með Vinnustaðajóga.

Jóga dekurhelgi, íslensk náttúruperla!
Komdu í þriggja daga jóga dekurhelgi daganna 14.-16.júní í Birkihofi, nálægt Laugarvatni.
Birkihof (falin dásemd í landi Syðri Reykja skammt frá Laugarvatni) er hlýlegt og fallegt, íslenskt gistihús með sundlaug og gufubaði. Svæðið er umvafið fallegri náttúru þar sem þú getur slitið þig frá hinu daglega amstri og notið umhverfis og aðstöðu í gefandi umhverfi en á staðnum er sundlaug, sána, flotbúnaður og heitur pottur.

Skapandi krakkar
Einstakt og skapandi sumarnámskeið fyrir krakka Námskeiðið er vikulangt, sumarnámskeið, þrjá tíma í senn. Námskeiðið er skemmtileg blanda af leiklist, tónlist og jóga þar sem